N1 mótið 2024 hefst miðvikudaginn 3. júlí
Flýtilyklar
Nöfn á liðum
15.06.2022
Ef félög vilja láta liðin sín í mótinu heita annað en t.d. KA1, KA2 og svo framvegis þá má senda okkur póst á n1mot@ka.is Til dæmis KA Hallgrímur eða KA Nökkvi. Það myndi þá birtast þannig á Torneopal. Við biðjum félögin að senda okkur þá hvernig röðin yrði.
KA1 = KA Hallgrímur
KA2 = KA Nökkvi ... og svo framvegis!
Lesa meira
Hópmyndir N1 mótsins 2021
06.07.2021
Pedrómyndir í samvinnu við N1 buðu upp á hópmyndatöku fyrir liðin á N1 mótinu í ár rétt eins og undanfarin ár. Nú er hægt að sækja myndirnar ykkur að kostnaðarlausu með því að skoða hlekkinn hér fyrir neðan
Lesa meira
Mótsmyndbandið og sigurvegarar mótsins!
05.07.2021
35. N1 mót KA var haldið á KA svæðinu dagana 30. júní - 3. júlí 2021. Mótið heldur áfram að stækka ár frá ári og var metþáttaka í ár er 216 lið kepptu í 9 deildum. Keppendur voru um 2.150 en alls voru leiknir 1056 leikir sem gera 29.832 mínútur af fótbolta
Lesa meira
Panta upptökur af sjónvarpsleikjum KA-TV
03.07.2021
KA-TV sýndi alla leiki beint á mótinu sem spilaðir eru á velli 8 á N1 mótinu. Öllum leikjum var lýst af kostgæfni og þá notuðum við flotta grafík til að sýna stöðuna og tímann hverju sinni
Lesa meira
Bíóplanið tilbúið - Ainbo mynd mótsins
28.06.2021
Þá er búið að raða öllum liðum mótsins niður á bíósýningar en öllum þátttakendum er boðið í bíó rétt eins og fyrri ár. Myndin sem varð fyrir valin í ár er Ainbo og er hún sýnd í Borgarbíó. Myndin er um 1 klukkutími og 24 mínútur að lengd
Lesa meira
Leikjaplanið er klárt
28.06.2021
Þá er loksins allt að verða klárt hjá okkur og við birtum nú sjálft leikjaplanið. Athugið að forkeppnin á miðvikudeginum segir til um í hvaða keppni liðin leika í kjölfarið
Lesa meira
Gistiplan N1 mótsins 2021
27.06.2021
Gist verður í Brekkuskóla, Oddeyrarskóla, Giljaskóla, Glerárskóla, Rósenborg og Verkmenntaskólanum á N1 mótinu í ár
Lesa meira