Bíóplanið tilbúið og leikjaplanið endanlegt!

Það eru einungis tveir dagar í að N1 mótsveislan hefjist á KA-svæðinu og höfum við nú gert þær smávægilegu breytingar á leikjaplaninu útfrá þeim beiðnum sem félögin hafa komið með síðustu daga.

Við biðjum því öll félög til að renna aftur yfir leikjaplanið góða til að vera alveg viss um að allt sé með feldu!

Smelltu hér til að skoða leikjaplan N1 mótsins

Á sama tíma birtum við nú bíóplanið en myndin sem er sýnd í ár heitir My Spy og er hún sýnd í Borgarbíó. Myndin er um 1 klukkutími og 39 mínútur að lengd.

Hverju liði hefur verið úthlutað ákveðinni sýningu og það er mjög mikilvægt að liðin mæti á uppgefnum tíma. Við mælum eindregið með að kíkja mjög tímanlega í Borgarbíó fyrir sýningu til að ganga frá pöntun á veitingum ef liðin ætla sér að nýta tilboðin sem eru í boði.

Smelltu hér til að skoða bíóplan N1 mótsins í ár

Borgarbíó býður upp á eftirfarandi tilboð:
Tvenna: Popp og Svali, 500 kr.
Þrenna: Popp, Svali og Hraun, 550 kr.

Ef einhverjar spurningar eru þá er síminn hjá Borgarbíó: 694-2023



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  saevar@ka.is