Treyjuafhendingar og númeradrættir næstu daga

Á morgun, föstudaginn 22. júní, og alla næstu viku (mánudag til föstudags) verður hægt að nálgast gjafabréf fyrir nýju treyjunni sem fylgir með æfingagjöldunum, sem og draga númer fyrir þá sem eiga það eftir.
Þetta er einungis hægt að gera milli kl. 09:30 og 12:30 hjá henni Örnu.

Afhending fer fram í KA-heimilinu en treyjan sjálf er afhent í Toppmenn og Sport. Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga:

1) Það þarf að vera búið að ganga frá greiðslu eða gera grein fyrir æfingagjöldum sumarið 2018 til þess að fá gjafabréf afhent.

2) Árgangar 2006, 2007 og 2008 draga númer sem fer á bakið á keppnistreyjunum. Árgangar 2009, 2010, 2011 og 2012 hafa frjálst val um númer. Eldri en 2006 eiga nú þegar að hafa dregið númer.

TOPPMENN OG SPORT EFNA Í KJÖLFARIÐ TIL KA-DAGA. 15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM KA VÖRUM MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG. 

ATH. Iðkendur í 3. og 4. flokki: treyjur í stærðum small, medium og large eru ekki komnar en allar barnastærðir eru komnar. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að sækja gjafabréfin. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is