Fjórir á U16 æfingar

Fjórir á U16 æfingar
KA Íslandsmeistari 4. fl karla 2015.

Þeir Birgir Baldvinsson, Ingólfur Birnir Þórarinsson, Sveinn Margeir Hauksson og Þorsteinn Már Þorvaldsson hafa verið boðaðir á U16 æfingar helgina 1.-3. apríl fyrir sunnan.

Birgir, Ingólfur Birnir og Þorsteinn Már voru allir hluti af Íslandsmeistaraliði 4. fl síðasta sumar. Sveinn Margeir lék þá með KF/Dalvík en í vetur hefur hann bæði æft með Dalvíkingum og KA. Hann mun þó spila með KA í sumar. 

Við eigum því flesta leikmenn á þessum æfingum sem er ánægjulegt sérstaklega í ljósi þess að við eigum fleiri drengi í þessum árgang sem myndu standa sig mjög vel á þessum æfingum.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is