Flýtilyklar
Vorgrill hjá stelpunum í 8. fl
Stelpurnar í 8. fl voru ánægðar að fá pylsur og andlitsmálningu eftir æfingu á mánudaginn.
Stelpurnar byrjuðu á að taka vel á því á æfingu á gervigrasinu. Að æfingu lokinni þá fengu þær pylsur ásamt því að 3. kvenna máluðu þær í framan. Að þessu sinni voru það fiðrildin sem voru vinsælust í andlitsmálningunni.
Myndir frá mánudeginum má sjá hér.
Eftir áramót var ákveðið að prófa að hafa sér flokk fyrir stelpur á leiksskólaaldri en fram að því æfðu strákar og stelpur saman á þessum aldri. Þetta heppnaðist mjög vel en að meðaltali voru að koma um 15 stelpur á æfingu.
Það var því ákveðið að halda áfram með þennan flokk í sumar og munu þær æfa kl. 16:15-17:00 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í sumar. Fyrsta æfingin verður þriðjudaginn 10. júní.
Þjálfarar í sumar verða líkt og í vetur Alli, Harpa og Rakel.