Vetrardagskráin byrjar ekki alveg hnökralaus

Eins og þið flest vitið þá er vetrardagsskráin farin af stað á fullu. Það hafa verið nokkrir hnökrar hvað varðar þjálfara á flokkunum og eins æfingartímum. Við viljum biðjast velvirðingar á þessu en þetta hefur verið óhjákvæmilegt sökum fría hjá þjálfurum og eins höfum við reynt að nýta svæðið sem allra best.

Það munu áfram verða einhverjar smá tilfæringar/afleysingar á þjálfurum næstu vikurnar og mögulega geta tímar átt eftir að breytast lítillega en það mun þó einskorðast við elstu flokkana. Við viljum biðja ykkur að sýna þessu þolinmæði en við erum að gera okkar besta til að festa þessa hluti sem allra mest niður.

Með fyrirfram þökk
Yngriflokkaráð 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is