Vel heppnað Stefnumót

Það voru um 300 krakkar sem léku á Stefnumóti KA í 5-manna bolta. Við vorum með flest lið eða 15 talsins í 6. fl kv, 7. fl kv, 7. fl kk og 8. fl kk. 

Ásamt því að spila fótbolta fengu krakkarnir verðlaunapening, pizzu og trópí í mótslok. Það fóru því allir sáttir heim en öll KA-liðin stóðu sig mjög vel. Það verður gaman að fylgjast með þessum fótboltasnillingum í framtíðinni.

KA þakkar Stefnu fyrir stuðninginn á mótum vetrarins en þeir voru einnig styrktaraðilar á Stefnumóti 3. fl drengja. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is