Úrslitaleikir framundan

Úrslitaleikir framundan
Íslandsmeistarar 3. kk B-liða 2016

Á næstu dögum eru margir stórleikir í yngirflokkum KA og Þór/KA.

Bikarúrslitaleikur Norður- og Austurlands - 3. flokkur karla
Miðvikudaginn 13. september kl. 17:00 á Þórsvelli gegn Þór.

Úrslitaleikur á Íslandsmóti - 3. flokkur karla B-lið
Laugardaginn 16. september kl. 14:00 á Blönduósvelli gegn Fjölni.

Sigur í deildarleik og 2. flokkur Þór/KA verður Íslandsmeistari
Laugardaginn 16. september kl. 16:00 á Akureyrarvelli gegn HK/Víking.

Bikarúrslitaleikur Norður- og Austurlands - 3. flokkur kvenna
Þriðjudaginn 19. september kl. 16:45 á Akureyrarvelli gegn Þór.

Úrslitaleikur um að komast upp í A-deild í 2. flokk karla
Þriðjudaginn 19. september kl. 17:00 á Þórsvelli gegn Þór. Fyrir leikinn er KA/Dalvík/Reynir/Magni í 2. sæti og Þór stigi á eftir.

Um helgina fyrir sunnan munu öflugir leikmenn í 4. flokk kvenna B-lið og 4. flokk karla C-lið keppa í fjagra liða úrslitum Íslandsmótsins.

Það er því mikið undir í síðustu leikjum sumarins en eitt er víst að okkar fólk mun gefa ekkert eftir í þessum leikjum.

Áfram KA!



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is