Úrslit gærdagsins

3.fl karla áttu fyrir fram erfiðan leik á móti Stjörnunni sem eru taldir sigurstranglegir í þessum flokki. A-liðið tapaði 1-0 sem verða að teljast flott úrslti og B-liðið tapaði 3-0

4.fl karla spilaði á móti Fram í Úlfársdal sem verðu að teljast óhappa völlur fyrir 4.fl en þetta var i annað skipti sem 4.fl kk spila á vellinum á móti Fram og í bæði skiptin er hávaða rok þegar leikirnir fara fram.

A-lið 4.fl átti ekki góðan dag en þeir töpuðu leiknum 7-1. Það var Frosti Brynólfsson sem skoraði mark KA í leiknum.

B-liðið lendir í sama veseni og A-liðið en þeir tapa sínum leik 8-3 þar sem Þorsteinn Már Þorvaldsson skoraði öll mörk KA.

C-liðið náði síðan fínum úrslitum en sá leikur endaði 1-1 og var það Viktor Andri Sigurðsson sem skoraði marki þar.

3. karla á síðan leik á móti Breiðablik í dag



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is