Unglingadómaranámskeið KSÍ

Unglingadómaranámskeið KSÍ
Þóroddur Hjaltalín Jr. mun kenna á námskeiðinu.

Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá KA í KA heimilinu mánudaginn 20. apríl kl. 20:00.

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við KA og hefst kl. 20:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Iðkendur í 3. fl eiga að mæta á námskeiðið en einnig vonumst við eftir að fá sem flesta foreldra á námskeiðið.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is