Undirskrift þjálfara

Undirskrift þjálfara
Fríður hópur

Á dögunum rituðu þjálfarar og formaður yngriflokkaráðs undir samninga um þjálfun á yngriflokkum í knattspyrnu fyrir veturinn. Að sjálfsögðu var það gert fyrir utan KA-heimilið með nýja gervigrasvöllinn í baksýn þar sem allt iðar að lífi þessa dagana hvort sem um dag eða kvöld er að ræða. KA má vera virkilega stolt af þeim hópi þjálfara sem starfa fyrir félagið því sjaldan hafa verið jafn margir þjálfarar hjá félaginu með jafn mikla reynslu og menntun eins og í dag.

Gengið var frá samningi við Pétur Ólafsson sem yfirþjálfara og er það staða sem hann hefur gengt undanfarið hjá KA. Pétur er með áralanga reynslu í þjálfun og hefur lokið UEFA A þjálfaraprófi. Einnig voru kynntir til sögunar nýir þjálfarar í hópinn og ber þar að nefna Alla og Ásgeir sem hafa mikla reynslu. Alli kemur sem þjálfari hjá nokkrum flokkum, en mun einnig gegna stöðu sem yfirþjálfari kvenna flokka.

Eftirfarandi munu þjálfa:
8. flokkur - Sævar og Andri
7. flokkur karla - Tufa og Siguróli
7. flokkur kvenna - Alli
6. flokkur karla - Tufa, Egill Ármann og Siguróli
6. flokkur kvenna - Alli og Ásgeir
5. flokkur karla - Míló, Atli Sveinn og Alli
5. flokkur kvenna - Ásgeir og Gunnar Orri
4. flokkur karla - Egill Daði, Steingrímur og Míló
4. flokkur kvenna - Egill Ármann og Ásgeir
3. flokkur karla - Óskar og Mark
3. flokkur kvenna - Egill Ármann og Alli



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is