Þrír stórleikir á sunnudaginn

Þrír stórleikir á sunnudaginn
4. flokkur eftir að hafa komist í úrslitaleikinn.

Á sunnudaginn eru þrír stórleikir á Akureyri hjá 3. fl kvenna og 4. fl karla.

4. flokkur karla B-lið gegn Breiðablik kl. 11:00 á KA-velli.
Strákarnir eru með 4 stig eftir 2 leiki í 2. sæti á meðan Blikar eru í fyrsta sæti með 6 stig. Sigur í leiknum þýðir að strákarnir verða Íslandsmeistarar.

3. flokkur kvenna gegn Tindstól kl. 11:30 á Akureyrarvelli í bikarúrslitum Norður- og Austurlands. 
Stelpurnar hafa átt mjög gott sumar og ætla að klára það með stæl!

4. flokkur karla A-lið gegn Fjölni kl. 15:00 á Akureyrarvelli í úrslitaleik Íslandsmótsins!
Tvö efnileg lið sem mætast og verður hart barist um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is