Þjálfarar á Coerver Coaching námskeið

Alli, Búi, Egill Ármann, Egill Daði, Ellert, Milo, Peddi og Steini Eiðs tóku þátt á námskeiði í hugmyndafræði Coerver Coaching helgina 21.-22. febrúar.

Námskeiðið fór fram í Hveragerði og á höfuðborgasvæðinu. Brad Douglass stjórnaði námskeiðinu en hann starfar sem Technical Director hjá Coerver Coaching.

Einhverjir ættu að kannast við hollenska þjálfarann Wiel Coerver sem var á sínum tíma brautryðjandi á sviði tækni og færni þjálfunar og er æfingaáætlun Coerver Coaching undir áhrifum frá honum.

Coerver Coaching: Hugmynda- og æfingaáætlun í knattspyrnu sem þjálfar upp færni og hentar öllum aldurshópum en sérstaklega aldrinum 6-16 ára á öllum getustigum, og einnig foreldrum, þjálfurum og kennurum. Hugmyndafræði sem einblínir á að þróa færni einstaklingsins og leikæfingar í smáum hópum. Viðurkennt og mælt með af mörgum af stærstu og virtustu knattspyrnusamböndum heims, leikmönnum, sérfræðingum og félögum svo sem:

Knattspyrnusamband Frakklands, Knattspyrnusamband Ástralíu, Knattspyrnusamband Kína, Knattspyrnusamband Japans, FC Bayern, Newcastle United FC, Arsenal FC og Adidas

Brad Douglass hefur víða komið við á sínum ferli. Hann hefur m.a. kennt á námskeiðum hjá mörgum knattspyrnusamböndum víðs vegar um heiminn, svo sem í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Skotlandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Möltu, Póllandi, Kína og Færeyjum. Auk þess hefur hann starfað með liðum á borð við AC Milan, Rosenborg, Bröndby og HJK Helsinki. Hann hefur einnig komið að starfi UEFA og FIFA í kringum einstaka viðburði.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is