Strákarnir í 6. fl stóðu sig vel á Goðamótinu

Strákarnir í 6. fl stóðu sig vel á Goðamótinu
Goðamótsmeistarar í Argentínskudeildinni.

Það voru 8 KA-lið sem tóku þátt í Goðamótinu í 6. fl kk síðustu helgi. Öll liðin stóðu sig vel en voru það þó strákarnir í KA 1 sem spiluðu manna best og enduðu sem sigurvegarar mótsins.

Alls tóku 80 lið þátt í sjö deildum en spilað var á sex völlum í einu. Mótið var nokkuð sterkt en Breiðablik, HK, KR og Stjarnan komu að sunnan ásamt flottum liðum hér í kring. 

Árangur KA-liða í ákveðnum deildum:
Argentína: 1. sæti
Brasilía: 5. sæti
Chile: 9. sæti
Danmörk: 3. sæti
England: 3. og 5. sæti
Frakkland: 2. sæti
Grikkland: 6. sæti 

Flottir strákar hér á ferð sem eru í góðum höndum hjá Túfa, Agli Ármanni og Siguróla Magna. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is