Strákarnir í 5. fl Goðamótsmeistarar

KA-liðin áttu mjög flotta helgi þar sem KA-lið sigruðu alla styrkleika á mótinu. Sami flokkur átti flott mót fyrir sunnan í janúar á sterku móti hjá Breiðablik.

Um helgina kepptu tvö lið í A-styrkleika og enduðu þau í 1.-2. og 5. sæti af níu liðum. Ekki var árangurinn slakari í B-styrkleika þar sem KA-strákarnir enduðu í 1., 4. og 5. sæti af níu liðum. Við áttum þó bestu gengi að fagna í C-styrkleika þar sem við enduðum í 1., 3. og 6. sæti af tólf liðum. Þjálfarnir voru því mjög sáttir með sína drengi bæði með árangurinn og frammistöðuna.

Í janúar tóku sex lið þátt á sterku og fjölmennu móti í Fífunni í Kópavogi. Þar vorum við einnig ofarlega í flestum liðum. Það er því greinilegt að flokkurinn er í góðum höndum hjá Milo, Ellert, Pedda og Steina Eiðs. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is