Strákarnir í 3. fl bikarmeistarar!

Strákarnir í 3. fl urðu bikarmeistarar Norður- og Austurlands eftir að hafa unnið sameiginlegt lið Austurlands í úrslitaleiknum. Áður höfðu okkar menn unnið Þór sannfærandi 4-1 í undanúrslitum.

Það voru ljómandi góðar aðstæður til knattspyrnuiðkunnar á Vilhjálmsvelli þegar KA og sameiginlegt lið Austurlands mættust í hreinum úrslitaleik um bikarinn.

Okkar menn byrjuðu að miklum krafti fyrstu tíu mínúturnar en eftir það fram að hálfleik voru þeir ólíkir sjálfum sér. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en voru þó okkar menn nær því að ná setja fyrsta markið.

Meiri kraftur var í leik KA í seinni hálfleik og var það sóknarmaðurinn Þorsteinn Már Þorvaldsson sem kom KA yfir á 52. mín. Eftir þetta fengu KA virkilega góð færi ásamt víti en allt kom fyrir ekki og var þetta þegar upp var staðið eina mark leiksins. 

KA-drengirnir voru ánægðir í leikslok enda bikarmeistarar 2016!



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is