Stórleikur í Pepsi-deildinni í kvöld - Allir á völlinn!

KA tekur á móti Stjörnunni á Akureyrarvelli kl. 18:00 í kvöld. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur og þarf liðið á öllum þeim stuðningi að halda sem við getum veitt þeim.


Til þess að gera daginn enn skemmtilegri er mikið um að vera í kringum leikinn. Það verða gefins pylsur og drykkir frá kl. 17:00. Þá verður happadrætti þar sem dregin verða út verðlaun af öllum seldum aðgöngumiðum og leikmenn munu kasta glaðningi upp í stúku þegar þeir labba inn á völlinn. Þá mun 6. flokkur drengja leiða bæði lið út á völlinn.


Til þess að toppa þennan skemmtilega leik sem er framundan hafa veðurguðirnir blessað okkur með frábæru veðri, 15 gráðum, sól og logni það er því ekkert til fyrirstöðu að skella sér á völlinn í kvöld með alla fjölskylduna og styðja KA til sigurs.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is