Stelpurnar sælar á Goðamóti

Stelpurnar sælar á Goðamóti
KA Danmörk 2

Alls tóku 38 KA-stelpur þátt á Goðamótinu í 6. fl kvenna. 23 stelpur tóku þátt úr 6. fl og 15 stelpur úr 7. fl eldra ári. Stelpurnar úr 7. fl gáfu þeim eldri ekkert eftir og fengu helling út úr því að spila upp fyrir sig um helgina.


Að þessu sinni var ekkert KA-lið sem náði að vinna til verðlauna en mótið var mjög sterkt og voru Valsarar og Blikar með mörg góð lið. Flest KA-liðin voru um miðju í sinni keppni og þóttu standa sig vel.

Síðasta mót vetrarins verður Stefnumót KA í 6.-8. fl stúlkna og 7.-8. fl drengja sem verður haldið laugardaginn 9. maí.




Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is