Stefnumótsmeistarar 4. fl drengja

Um helgina fylgdu strákarnir í 4. fl eftir góðum árangri 3. fl þar sem þeir sigurðu mótið ásamt því að KA2 unnu B-úrslitin. Bæði lið mættu Þór í úrslitum í hörkuleikjum þar sem 1-0 var niðurstaðan í báðum leikjum. 

KA var með fjögur lið á mótinu en það er mjög ánægjulegt hversu margir drengir eru í flokknum. 

Þetta var þriðja og síðasta Stefnumót vetrarins í 11-manna liðum en í kjölfarið í febrúar og apríl verða fjögur Goðamót í 5. og 6. fl. Síðasta mót vetrarins verður svo þegar við höldum Stefnumót fyrir 6.-8. fl í byrjun maí.

Hér fyrir neðan má sjá sigurmarkið í A-úrslitum



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is