Stefnumótsmeistarar 3. fl drengja

Stefnumótsmeistarar 3. fl drengja
Hópmynd af meisturum helgarinnar.

Strákarnir í 3. fl stóðu sig vel á Stefnumóti KA um síðustu helgi. Það tóku þátt 10 lið í mótinu í einum styrkleika. Það var því ákveðið að hafa þrjú KA lið svipuð af getu.

Öll liðin stóðu sig mjög vel og ber þar að nefna að öll liðin enduðu í topp fimm. Tvö KA-lið komust í undanúrslit þar sem liðin mættust innbyrðis í hörkuleik. Í úrslitaleikaleiknum unnu strákarnir í hörkuleik gegn ágætu Þórsliði. Í leiknum um þriðja sæti töpuðu okkar drengir gegn A-liði Austurlands 3-2. Þriðja liðið fór í B-úrslit fyrir þau lið sem komust ekki í undanúrslit og gerði það sér lítið fyrir unnu strákarnir þau úrslit.

Ásamt að strákarnir stóðu sig vel innan vallar voru þeir til fyrirmyndar og góð stemning var í hópnum. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is