Flýtilyklar
Stefnumótið heppnaðist vel
Um 400 drengir og stúlkur á aldrinum fjagra til tíu ára tóku þátt á Stefnumóti KA fyrir yngstu flokkana.
Alls voru 69 lið frá Tindastól, KF, Dalvík, Þór, KA, Magna, Völsungi, Einherja og Hetti sem léku samtals 140 leiki laugardaginn 9. maí.
KA-liðin stóðu sig mjög vel og greinilega fullt af flottum hlutum að gerast í yngstu flokkunum. Alls tóku yfir 100 KA-krakkar þátt í 20 liðum en aldrei hafa verið fleiri KA-lið á þessu móti.
Einnig var mjög ánægjulegt að um 70 iðkendur úr 3. fl komu að mótinu með dómgæslu, verðlaunaafhendingu eða pizzuúthlutun. KA þakkar þeim og öðrum sjálfboðaliðum sem gerðu þetta mót að veruleika kærlega fyrir sitt framlag.
Að lokum ber að þakka Stefnu Hugbúnaðarhúsi sem er eins og nafnið gefur tilkynna aðal styrktaraðili Stefnumótanna.