Flýtilyklar
Stefnumót KA 6. maí
07.04.2017
Stefnumót fyrir 6. fl karla, 6. fl kvenna, 7. fl kvenna, 7. fl karla og 8. fl verður haldið laugardaginn 6. maí í Boganum.
Fyrirkomulagið verður með sama sniði og undanfarin ár að mótinu er skipt upp í þrjá hluta. Hvert lið spilar í einum hluta og er því á svæðinu í tæplega 3 klst. Á þeim tíma spilar hvert lið nokkra 5-manna leiki og í lok móts fá krakkarnir verðlaunapening, pizzu og svala. Þetta fyrirkomulag hefur heppnast mjög vel og má því búast við frábæru móti.
Þjálfarar auglýsa skráningu í mótið þegar nær dregur og leikjaplanið kemur inn í vikunni fyrir mót.
Eftir mótið fara þessir flokkar í 2 vikna vorfrí áður en æfingar hefjast á KA-velli.