Flýtilyklar
Stefnumót í fullum gangi
Stefnumótið fyrir 3. flokk karla hefur verið í fullum gangi þessa helgina og hefur það lukkast heilt yfir vel þrátt fyrir að veður og færð á vegum hafi sett mikið strik í reikninginn. Breyta þurfti mótinu þar sem að lið Fjarðarbyggðar og Hattar varð að hætta við að koma til Akureyrar vegna ófærðar. Það er sennilega hægt að segja, miðað við frétt sem birtist á mbl núna í dag að eina leiðin norður frá austurlandi hafi verið sjóleiðin. Vonumst til að sjá austfirðinga spræka á næsta móti.
Tvísýnt var líka með lið Einherja frá Vopnafirði en þeir ákvaðu að leggja í hann og fara strandirnar og má segja að þarna séu hörkudrengir sem eru tilbúnir að leggja ýmislegt á sig til að koma og taka þátt í þessu móti.
Eitt óhapp varð á föstudeginum og þurfti að kalla til sjúkrabíl sem fór með einn dreng KA manna upp á sjúkrahús en betur fór en á horfðist og var drengurinn ekki brotinn en nokkuð marinn. Við sendum Hjörvari að sjálfsögðu batakveðjur og vonum að hann verði farinn að hlaupa um fótboltavöllinn aftur sem allra fyrst.
Eðlilega er búin að vera mikil barátta á mótinu og eftir daginn í dag er ljóst að Þór 2 og KA 1 munu spila til úrslita í flokki A-liða á sunnudaginn klukkan 13:00. Þór 1 og Völsungur munu keppa um þriðja sætið í þeim flokki. Í flokki B-liða virðist vera orðið nokkuð ljóst að Þór 3 fari með sigur úr bítum þó svo að þeir eigi einn leik eftir. En KA 2, Dalvík/KF 1 og Einherji eiga öll möguleika á því að tryggja sér annað sætið þannig að baráttan verður hörð á sunnudaginn.
Nánar má fylgjast með á fotbolti.ka-sport.is/stefnumot
Mótsstjórn