Stefnumót 3. fl drengja fór vel fram

Það voru ellefu lið sem léku á Stefnumóti KA í keppni 3. flokks drengja helgina 6.-8. febrúar. 

Mótið fór vel fram en alls voru spilaðir 33 leikir þar sem hvert lið spilaði sex 1x40 mín leiki. Það voru Þórsarar sem voru sterkastir og fóru með sigur af hólmi bæði í A og B keppni. 

KA-liðin stóðu sig ágætlega en við vorum með þrjú lið. Í sætum endaði KA í 2. sæti í A-keppni og 3. og 5. sæti í spennandi B-keppni en einungis 4 stig munaði á 1. og 5. sæti.

Næsta Stefnumót KA er helgina 6.-8. mars en þá leika drengirnir í 4. flokki. Undirbúningur er hafinn fyrir það mót og stefnir í fjölmennt og skemmtilegt mót þar.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is