Slútt hjá stelpunum í 8. fl

Það var mikið fjör hjá stelpunum í 8. fl þegar þær tóku síðustu æfingu sumarsins. Stelpurnar æfðu þrisvar sinnum í viku í sumar og mættu venjulega rúmlega 10 á æfingar. Mætingin í dag var þó mjög góð en um 30 stelpur mættu.

Æfingin var með nokkuð hefðbundnu sniði en hún var að þessu sinni kölluð "mót" þar sem þær fengu að vera í keppnistreyjum. Stelpurnar fóru í keðjuleik, stórfiskaleik og strút í upphitun. Eldri stelpurnar spiluðu fótbolta í fjórum liðum í kjölfarið en yngri stelpurnar fóru í skothring og fleira skemmtilegt. Í lokin var fagn æft fyrir föstudaginn og tekinn stærsti KA-hringur sumarsins.

Þegar þær voru búnar á æfingu þá voru nokkrir foreldrar klárir með pylsuveislu og stelpurnar í 3. flokk með andlitsmálningu. Stelpurnar í 3. flokk hjálpuðu einnig til við æfinguna og eiga þær hrós skilið fyrir sitt framlag. 

Þjálfarar flokksins eru Alli, Harpa og Rakel og eru þau mjög ánægð með stelpurnar í sumar. Það sem stendur upp úr sumrinu er hversu margar stelpur fæddar 2010 voru duglegar að mæta. 

Næsta æfing hjá stelpunum í 8. fl (f. 2009-2011) verður miðvikudaginn 10. september kl. 16:15-17:00. En þær munu æfa í vetur á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:15-17:00.

Stelpurnar sem voru að byrja í skóla færast upp í 7. flokk og er næsta æfing hjá þeim þriðjudaginn 9. september kl. 16:00-17:00. Þær munu æfa í vetur á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:00-17:00 og á laugardögum 10:00-11:00. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is