Sjálfboðaliðar á Stefnumóti KA

Laugardaginn 30. apríl verður Stefnumót KA í Boganum fyrir 6.-8. fl.

Mikil ánægja hefur verið með þetta mót undanfarin ár þar sem margir KA-menn hafa hjálpast að allt gangi vel upp. 

Iðkendur í 3. fl hafa séð um dómgæslu en ef einhverjir eldri hafa áhuga á að dæma væri það ánægjulegt.

Við erum þó aðalega að óska eftir fólki til að hjálpa okkur við pizzuveislu, verðlaunaafhendingu, vera á klukkunni, vestunum o.s.frv.

Þeir sem hafa áhuga senda póst á arna@ka.is nema ef um dómgæslu er að ræða þá skal senda póst á alli@ka.is. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is