Sigursælir KA drengir

Sigursælir KA drengir
Hollenskumeistarnir

KA strákarnir áttu frábært mót á sterku Goðamóti um helgina í 6. fl. Ásamt liðum af landsbyggðinni mættu Breiðablik, HK, Stjarnan, Afturelding og KR og úr varð fjölmennt og flott mót sem Þór héld með myndarbrag.

Alls vorum við með um 70 drengi í 11 liðum sem stóðu sig með miklum sóma. Sigurhlutfall KA liðanna var óvenjuhátt enda flottir strákar sem eru duglegir að æfa undir leiðsögn hæfra þjálfara.

KA-liðin gerðu sér lítið fyrir og unnu fjórar af átta keppnum en öll liðin enduðu í topp fjórum fyrir utan tvö lið sem voru svo óheppin að tapa í hlutkesti að komast í undanúrslit.

Óskum strákunum og þjálfurum með þennan glæsilega árangur.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is