Sigrar hjá Aroni og Daníel

Aron Dagur og Daníel sigurðu Wales og N-Írland á æfingamóti í Færeyjum með U17 ára liði Íslands.

Daníel spilaði fyrstu 63. mínútur leiksins sem hægri bakvörður þegar liðið sigraði Wales 2-1 á laugardaginn. Aron Dagur var ónotaður varamaður í leiknum.

Aron Dagur spilaði aftur á móti allan leikinn í marki Íslands þegar liðið vann N-Írland 3-2. Daníel kom inná í seinni hálfleik sem vinstri bakvörður.

Strákarnir fá frídag á morgun en mæta svo Færeyjum á þriðjudaginn áður en þeir koma heim.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is