Sex valin á Laugavatn

Það voru sex ungmenni á yngra ári í 3. fl valin á úrtökumót KSÍ á Laugavatni.

Arna Kristinsdóttir, Berglind Baldursdóttir, Rakel Sjöfn Stefánsdóttir og Rósa Dís Stefánsdóttir fóru á Laugavatn um miðjan ágúst. Angantýr Máni Gautason fór á Laugavatn viku síðar en ásamt honum var Frosti Brynjólfsson valinn en komst ekki vegna meiðsla.

Bæði hjá stelpunum og strákunum þá var skipt í fjögur lið þar sem var tekið mót þar sem hvert lið spilaði einn leik á dag föstudag til sunnudags ásamt æfingu og annari dagskrá.




Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is