Sandra María til Leverkusen á láni

Sandra María Jessen þjálfari 4., 5. og 7. fl kvenna hefur verið lánuð til þýska liðsins Leverkusen. Hún heldur utan í næstu viku og kemur aftur í byrjun maí. Hún kemur því aftur í þjálfarateymið í byrjun maí reynslunni ríkari úr atvinnumennskunni.

Við í yngriflokkum samgleðjumst Söndru Maríu að fá að upplifa að spila erlendis í sterkri deild. Enn og aftur er Sandra María að sýna ungum fótboltastelpum á Akureyri hvað þær geta gert í fótboltanum ef þær leggja sig fram. Við vonumst því eftir að þessi lánssamningur auki metnað efnilegra fótboltastelpna hjá okkur.

Skúli Bragi tekur við 7. flokk kvenna en hann hefur verið með Söndru Maríu 1-2x í viku í vetur. Þau munu svo í sameiningu ásamt aðstoðarþjálfurum vera með flokkinn í sumar. 

Búi Vilhjálmur kemur með Agli Ármanni í þjálfarateymi 5. fl kvenna á meðan Sandra er úti og þá verður Anna Rakel með Pedda í 4. fl kvenna á þriðjudögum.

 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is