RISA-leikur á laugardaginn - frítt inn fyrir iðkendur

Það er gríðarlega mikilvægur leikur á morgun, laugardag, þegar að KA tekur á móti Selfoss í InKassodeild karla á Akureyrarvelli. Leikurinn hefst kl. 16:00 og með sigri getur KA tryggt sæti sitt í Pepsi-deildinni að ári. Við hvetjum alla iðkendur, foreldra  og systkini til þess að mæta á völlinn og hvetja liðið til sigurs. 

Það er frítt inn fyrir iðkendur KA og eru allir hvattir til þess að mæta í gulu (frábær veðurspá). Pepsi-deildarsæti yrði gríðarlega mikil lyftistöng fyrir knattspyrnustarf félagsins í heild sinni og þurfa strákarnir á stuðningi að halda.

Boðið verður upp á andslitsmálingu fyrir leik. 16:00 á laugardaginn, KA-Selfoss, Akureyrarvelli.

Áfram KA!



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is