Pollamóts og Hnátumótsmeistarar

Við áttum átján lið úr 6. fl á Pollamótinu hjá strákunum og Hnátumótinu hjá stelpunum. Til að gera langa sögu stutta þá sigruðum við allar sex keppninar.

Um er að ræða mót sem KSÍ heldur á Norður- og Austurlandi og er um hálfgert Íslandsmót að ræða en sambærilegt mót er fyrir Suður- og Vesturland. 

Í júní og júlí var riðlakeppni þar sem KA-liðin stóðu sig virkilega vel. Það þýddi að KA átti mörg lið í úrslitum sem endaði með eins og áður sagði að KA hafði sigur úr bítum í öllum keppnunum.

Hér má sjá myndsyrpa af mótum úr úrslitakeppni Hnátumótsins sem fram fór á KA-velli um helgina.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is