Flýtilyklar
Ný heimasíða
Kæru foreldrar og iðkendur.
Nú er komin í loftið ný heimasíða sem á að hafa sama tilgang og sú gamla hafði, þ.e.a.s. koma upplýsingum til iðkenda og foreldra. Hægt er að velja á milli flokka hérna til hliðar þar sem tilkynningar koma inn reglulega frá þjálfurum og foreldraráðum fyrir viðkomandi flokka.
Það er líka nýr og þægilegur möguleiki kominn inn á síðuna en það er skráning á póstlista. Það er því mjög mikilvægt að allir foreldrar skrái sig á póstlista hjá viðkomandi árgangi sinna barna. Þá geta þjálfarar og þeir sem skrifa inn á síðurnar sent tilkynninguna (fréttina) sjálfkrafa sem póst til ykkar kæru foreldrar.
Það er líka komið inn nýtt athugasemdakerfi sem ætti að útskýra sig sjálft en þar er hægt að skrifa bæði sem gestur eða vera innskráður. Hægt er að skrá sig inn með facebook. Þetta athugasemdakerfi er því miður eins og staðan er núna eingöngu á ensku en það stendur til að þýða það yfir á íslensku.
Vefurinn mun vera í nokkurri þróun næstu mánuði og megið þið endilega senda okkur athugasemdir annaðhvort með athugasemdakerfinu eða senda okkur skilaboð í gegnum "Hafa samband". Eins ef þið eigið góðar myndir þá megið þið endilega senda okkur þær til að skreyta síðuna. Getið sent þær á yngriflokkarad@gmail.com
Yngriflokkaráð