N1-mótsfrí

Vegna N1-mótsins er frí hjá öllum flokkum á fimmtudag og föstudag. Einnig er frí hjá öllum karlaflokkum á miðvikudaginn.

N1-mót KA er stærsta mót sumarsins sem haldið er fyrir drengi á landinu. Þar leika um 180 lið í 5. fl karla frá öllu landinu ásamt því að lið frá Svíþjóð og Færeyjum taka þátt. 5. flokkur karla hjá KA eru með níu lið en flokkurinn hefur aldrei verið fjölmennari.

Við hvetjum því alla að kíkja á svæðið um helgina og upplifa hina frægu N1-móts stemningu.

 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is