Myndir frá jólaæfingu

Myndir frá jólaæfingu
Jólaæfing 2014

Laugardaginn 13. desember voru síðustu æfingar yngri flokkanna fyrir jól. Í 6. og 7. flokki karla og kvenna var foreldrafótbolti þar sem foreldrar fengu að spreyta sig gegn ungviðinu. Jólasveinar kíktu í heimsókn, tóku þátt í fjörinu og færðu krökkunum harðfisk. 8. flokkur fékk líka heimsókn frá sveinunum sem tóku þátt í æfingunni með yngstu krökkunum.

Endilega smellið hér til að skoða fleiri myndir frá æfingunum.

Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 6. janúar 2015



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is