Flýtilyklar
Mikilvægir sigrar í 3. fl
Stelpurnar í 3. kvenna tóku á móti HK/Víking á laugardaginn. A-liðið vann sinn leik 2-1 með sigurmarki frá Önnu Rakel úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Sigurinn var mjög mikilvægur þar sem stelpurnar eru í harðri baráttu við HK/Víking og RKV (Reyni, Keflavík og Víði) um að ná 2. sæti í A-deild sem gefur sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins.
Í leiknum á eftir gerði B-liðið jafntefli 1-1 þar sem KA-liðið þótti talsvert betra. B-liðið stendur vel af vígi en þær eru í fyrsta sæti Íslandsmótsins þegar tveir leikir eru eftir.
Strákarnir í 3. fl tóku daginn snemma og mættu í morgunmat hjá Önnu Birnu og Alla um morguninn. Þegar allir voru búnir að borða vel af hafragraut þá var tekinn stuttur göngutúr í kringum KA-völlinn og fundur um leiki dagsins í kjölfarið.
A-liðið komu ákveðnir til leiks gegn Keflavík og komst snemma yfir eftir vítaspyrnu Björns Andra. Áki Sölva bætti við öðru marki fyrir hálfleik sem reyndist einnig síðasta mark leiksins og niðurstaðan 2-0 sigur.
B-liðið þurfti að sætta sig við 3-0 tap sem gefur ekki rétta mynd af leiknum en KA-liðið var oft nálægt því að skora en inn vildi boltinn ekki.
Myndir frá KA-Keflavík í 3. fl kk bæði A og B sem Þórir Tryggva tók og setti á Akureyri.net.
Úrslit og markaskorar
3. kv A KA 2-1 HK/Víkingur (Véný Skúla og Anna Rakel)
3. kv B KA 1-1 HK/Víkingur (Harpa Jó)
3. kk A KA 2-0 Keflavík (Björn Andri og Áki Sölva)
3. kk B KA 0-3 Keflavík