MERKT HENSON-HÁRBÖND TIL SÖLU!

6. flokkur kvenna í knattspyrnu tekur við pöntunum á þessum glæsilegu hárböndum fram til þriðjudagsins 7. júlí en að kvöldi þriðjudags verður pöntunin send Henson. Nú er um að gera að drífa sig og panta þessi glæsilegu, vinsælu hárbönd!

Þetta eru sömu hárbönd og 6. flokkur seldi í fyrra nema nú hafa þau verið stækkuð um 1,5cm til þess að þau séu ekki eins þröng. Hárböndin eru með KA merki og nafni. 

Þau munu kosta 2500 kr. stykkið.
Greiða þarf strax fyrir böndin því pöntun fer ekki í gegn nema greiðsla hafi borist.

Því viljum við biðja ykkur að greiða á eftirfarandi reikning og senda sjálfum ykkur kvittunina fyrir millifærslunni. 
Framsenda svo þá kvittun á netfangið kaharbond2@gmail.com úr ykkar netfangi með nafni barns/barna sem þið viljið að komi fram á bandi. 
Með þessu móti er hægt að hafa samband til baka, ef eitthvað er.

Unglingaráð knattspyrnud KA, kennitala: 4901012330 reikningur: 162-5-260850. Skýring: KAband.

ATH!! Síðasti pöntunardagur er þriðjudagurinn 7.júlí. Pöntun fer inn til Henson um kvöldið til að þau verði tilbúin fyrir Símamót. Þau verða sótt til Henson fyrir mót og deilt út fyrir sunnan. Þeir sem fara ekki á mót, fá böndin afhent eftir 19.júlí.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is