Markmannsæfingar og styrktaræfingar

Markmannsæfingar og styrktaræfingar hefjast þriðjudaginn 12. janúar eftir jólafrí.

Einn af styrkleikum í starfinu okkar eru góðar markmannsæfingar og styrktaræfingar.

Sandor Matus er stjórnar markmannsæfingunum en hann hefur sannað sig sem einn besti markmannsþjálfari landsins undanfarin ár.

Stefán Birgir og Egill Ármann eru báðir reynslumiklir styrktarþjálfarar sem stjórna styrktaræfingum fyrir unglingaflokka KA í knattspyrnu í KA-heimilinu. Það er alls ekki algengt að félög séu með styrktarþjálfara í yngriflokkum og erum við því mjög ánægð að geta boðið upp á slíkar æfingar.

Við hvetjum markmenn sem og krakka í 5. og 6. fl sem vilja prófa mark að mæta hjá Sandori.

Markmannsæfingar í Boganum:
Þriðjudagar
17:00-18:00 6. fl
18:00-19:00 3. og 4. fl

Fimmtudagur
17:00-18:00 3. og 4. fl
18:00-19:00 5. fl

Styrktaræfingar í KA-heimilinu:
Þriðjudagar
16:00-17:00 3. fl drengja

Miðvikudagur
15:00-16:00 árg. 2002 drengir

Föstudagar
14:10-15:00 4. fl stúlkur
15:00-16:00 3. fl kvenna
16:00-17:00 árg. 2003 drengir



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is