Lokahóf yngriflokka - laugardaginn 12. september kl. 11:00 á Akureyrarvelli - ALLIR AÐ MÆTA Í TREYJUNNI SINNI

Lokahóf Yngriflokka KA í fótbolta verður með breyttu sniði í ár, en tímabil 3. og 4. flokks eru enn í gangi og því verður lokhófið tvískipt.

Haldið verður lokahóf sérstaklega fyrir 8. til 5.fl. á laugardaginn n.k. en af sjálfsögðu eiga 4. og 3. flokkur að mæta líka, ef tök eru á. Lokahófið verður haldið á Akureyrarvellinum að þessu sinni og hefst það kl 11:00. Mæta aðeins fyrr J

Boðið verður uppá pylsur frá Kjarnafæði og Kristjánsbakarí sér um brauðin.

Farið verður yfir sumarið og Eyþór Ingi mætir á svæðið og tekur KA lagið og allir syngja með.

Kl 13:00 hefst svo leikur KA og Grindavíkur.

 

Í lok september verður svo annað lokahóf fyrir 4. og 3. flokk og verður það nánar auglýst síðar. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is