Laugardagurinn 06 júní

Laugardagurinn 06 júní
Flottir KA-krakkar

Á morgun laugardaginn 06 júní verður Þór 100 ára og halda upp á afmæli sitt með stæl á Þórsvellinum.  Við hvetjum sem flesta iðkendur úr yngri flokkum KA til að mæta á svæðið og taka þátt í afmæli þeirra á morgun.  Um 14.00 á lau væri gaman að sem flestir KA krakkar gætu mætt á Þórsvöllinn í gulu treyjunum sínum og verða þau kölluð inn á völlin og okkur gefin ís.  Þór hefur boðið okkar krökkum að mæta þarna og verða líka yngri iðkendur úr öðrum félögum á Akureyri sem stíga inn á völlinn og taka þátt í þessum hátíðarhöldum og viljum við að sjálfsögðu sína gott fordæmi og mæta með flottan hóp frá KA.

Að skemmtiatriðum loknum vonumst við svo að sjálfsögðu til að sjá sem flesta KA-krakka á KA vellinum en kl 16.00 tekur KA á móti Selfoss í 1.deildinni og á KA möguleika á því að komast á toppinn með sigri og því vonumst við eftir frábærum stuðningi frá öllu okkar fólki á morgun.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is