Landsliðsæfingar hjá U17

Landsliðsæfingar hjá U17
Margrét og Saga Líf í sumar.

Sjö leikmenn fæddir 1999 voru valin á landsliðsæfingar í september. Það er mikil viðurkenning að eiga jafn marga leikmenn í æfingahóp U17. Þessir krakkar eru öll að ganga upp úr yngriflokkastarfi KA og bíða þeim spennandi verkefni hjá 2. fl og vonandi meistaraflokk og landsliðum í framtíðinni. Einnig ber að nefna að það eru margir aðrir öflugir krakkar í þessum árgang og því er framtíðin björt!

Aron Dagur Birnuson, Áki Sölvason, Bjarni Aðalsteinsson og Daníel Hafsteinsson voru boðaðir á æfingar hjá drengjunum um helgina. 

Næstu helgi fara þær Margrét Árnadóttir, Saga Líf Sigurðardóttir og Æsa Skúladóttir á æfingar.

Báðir hóparnir eru að undirbúa sig fyrir undankeppni EM.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is