Krókurinn og Sigló!

Krókurinn og Sigló!
7. Bleikar voru baráttuglaðar um helgina.

Það var stór og flottur hópur drengja og stúlkna í 6. og 7. fl sem fóru frá KA að keppa á Króksmótinu og Pæjumótinu.

Á Sauðárkróki tóku þátt níu lið í 7. fl keppni og átta lið í 6. fl keppni. Stóðu liðin sig til fyrirmyndar og voru mörg KA-lið ofarlega. 

Á Siglufirði tóku átta lið í 7. fl keppni og þrjú í 6. fl keppni en einungis hluti hópsins tók þátt þar sem þetta var aukamót fyrir flokkinn. Stelpurnar geta verið sáttar með helgina en mikil stemning var í KA-liðunum.

Gaman hefur verið að fylgjast með þessum flokkum í sumar hjá KA. Þeir hafa náð góðum árangri á landsvísu og verður því gaman að fylgjast með þessum krökkum vaxa og dafna í öflugu yngriflokkastarfi KA næstu árin.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is