Kærar þakkir!

Kærar þakkir!
Samherjastyrkur

Þann 21. desember var formönnum íþróttafélaga á norðurlandi boðið í KA heimilið til að taka við myndarlegum styrk sem forsvarsmenn Samherja og Samherjasjóðsins veittu. Knattspyrnufélag Akureyrar var að sjálfsögðu í þeim hópi og kemur það sér afar vel fyrir alla sem tengjast yngriflokkastarfinu okkar.

Fyrir hönd yngriflokkaráðs og allra yngri flokka þá viljum við þakka eigendum Samherja fyrir þennan höfðinglega styrk.

Lesa þakkarbréf frá Hrefnu formanni á ka-sport.is

Bergvin Fannar Gunnarsson
Formaður yngriflokkaráðs 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is