KA töskur til sölu

Það er verið að hefja sölu á glæsilegum KA-bakpokum til styrktar stelpunum í 6. fl. Þar sem hver og einn bakpoki er merktur með KA merki og nafni þess sem á hana er nauðsynlegt að forpanta töskuna. 

Ef þig langar að kaupa svona tösku þarft þú að gera eftirfarandi:

Senda póst á katoskur@gmail.com með nafni, nafni sem á að fara á töskuna og símanúmer til þess að hægt sé að ná í viðkomandi. Þegar pöntunin hefur verið móttekin færð þú sendar greiðsluupplýsingar og borga þarf töskuna fyrir afhendingu. Töskunar kosta 3500kr stykkið. 

Síðasti séns til að panta svona töskur er 3. júní - afhending á töskunum er síðan hálfum mánuði síðar eða í kringum 20. júní. 

Töskurnar eru eins og þær á myndinni.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is