KA hárbönd - ný pöntun og afgreiðsla þeirra sem komin eru

6. flokkur kvenna í knattspyrnu tekur við pöntunum á þessum glæsilegu hárböndum fram til þriðjudagsins 6. ágúst en að kvöldi fimmtudags verður pöntunin send Henson. Nú er um að gera að drífa sig og panta þessi glæsilegu, vinsælu hárbönd!

Þetta eru sömu hárbönd og 6. flokkur seldi í fyrra nema nú hafa þau verið stækkuð um 1,5cm til þess að þau séu ekki eins þröng. Hárböndin eru með KA merki og nafni. 

Þau munu kosta 2500 kr. stykkið.
Greiða þarf strax fyrir böndin því pöntun fer ekki í gegn nema greiðsla hafi borist.

Því viljum við biðja ykkur að greiða á eftirfarandi reikning og senda sjálfum ykkur kvittunina fyrir millifærslunni. 
Framsenda svo þá kvittun á netfangið kaharbond2@gmail.com úr ykkar netfangi með nafni barns/barna sem þið viljið að komi fram á bandi. 
Með þessu móti er hægt að hafa samband til baka, ef eitthvað er.

Unglingaráð knattspyrnud KA, kennitala: 4901012330 reikningur: 162-5-260850. Skýring: KAband.

Á morgun milli 17-18 og á fimmtudag milli 14:15-15:30  verða ósótt bönd afgreidd í KA-heimilinu.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is