Flýtilyklar
KA-dagurinn
KA-dagurinn var haldinn í blíðskapar veðri og heppnaðist í alla staði mjög vel. Mikill fjöldi barna og unglinga ásamt foreldrum mættu á KA svæðið og tóku þátt í skemmtilegum leikjum og gæddu sér á dýrindis vöfflum í boði yngriflokkaráðs. Bakaðar voru um eða yfir 450 vöfflur og berum við bestu þakkir til þeirra sem sáu um að aðstoða okkur við baksturinn.
Krakkarnir voru á fullu í leikjum úti á gervigrasinu og sýndu þeir frábæra takta og gátu menn meðal annars látið mæla skothraðann hjá sér. Þegar þetta er skrifað lágu ekki fyrir upplýsingar um hvort það var iðkandi í KA eða einhver pabbinn/mamman sem var skotfastastur/skotföstust.
Inni fyrir var svo verið að taka á móti greiðslu æfingagjalda og gekk það að mestu leiti vel en viljum við þakka foreldrum fyrir þolinmæði og skilning gagnvart nýju kerfi sem verið er að taka upp á vegum Akureyrarbæjar. Við viljum minna á að hægt er að greiða æfingagjöldin og skrá krakkana í knattspyrnu hjá KA með því að smella hérna: Greiðsla æfingagjalda
Leiðbeiningar fyrir kerfið má finna með því að smella hérna: Leiðbeiningar
Nánar má svo lesa um æfingargjöld og æfingartíma með því að smella hérna: Æfingartafla
Dagurinn endaði svo á því að KA og Leiknir spiluðu á gervigrasinu og endaði sá leikur 0-0. Hefði verið skemmtilegt að fá 3 stig í hús til að fullkomna daginn.
Bestu þakkir fyrir skemmtilegan dag
Yngriflokkaráð.