Flýtilyklar
KA á ferð og flugi með íslenskum unglingalandsliðum
23.09.2013
Það er gaman að segja frá því að núna undanfarið hafa nokkrir strákar verið að spila fyrir landslið Íslands.
U-19 landslið okkar Íslendinga spilaði á móti í Svíþjóð þar sem tveir strákar frá KA voru í hóp. Þetta voru þeir Gauti Gautason og Ívar Sigurbjörnsson.
U-17 landsliðið er að spila þessa dagana og þar á KA líka tvo stráka, þá Bjarka Viðarsson og Óla Hrafn Kjartansson.
Fyrir um þrem vikum síðan lék Fannar Hafsteinsson í markinu fyrir U-19 í leik á móti Skotlandi sem Ísland vann 3-0.
Glæsilegur árangur hjá strákunum.