Jólaæfing í yngstu flokkunum

Það verður mikið um að vera á laugardaginn í Boganum. Einhverjir flokkar ætla að bregða út af vananum og bjóða foreldrum að spila með eða á móti krökkunum í svokölluðum foreldrafótbolta á meðan aðrir flokkar taka venjulega æfingu. Þá mæta jólasveinar og heilsa upp á krakkana í 6.-8. flokki.

Allar æfingar eru samkvæmt plani nema 8. fl verður kl. 10:00 en þau æfa venjulega ekki á laugardögum.

Laugardagurinn er jafnframt síðasti æfingadagur yngriflokka fyrir jólafrí en stefnan er sett á að byrja aftur laugardaginn 7. janúar.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is