Jólaæfing á laugardaginn hjá yngstu

Jólaæfing á laugardaginn hjá yngstu
Vaka, Túfa, Alli og Andri í góðum félagsskap.

Það verður mikið um að vera á laugardaginn í Boganum. Nokkrir flokkar ætla að bregða út af vananum og bjóða foreldrum að spila með eða á móti krökkunum í svokölluðum foreldrafótbolta. Þá mæta jólasveinar og heilsa upp á krakkana í 6.-8. flokki.

Allar æfingar eru samkvæmt plani nema 8. fl verður kl. 10:15-11:00 en þau æfa venjulega ekki.

Einnig fara fram tveir leikir í Boganum á laugardaginn. Þriðji flokkur kvenna mætir Hömrunum kl. 13:00 og meistaraflokkur karla tekur á móti Magna kl. 15:00.

Laugardagurinn er jafnframt síðasti æfingadagur yngriflokka fyrir jólafrí en stefnan er sett á að byrja aftur þriðjudaginn 5. janúar.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is