Ís og gleði í 7. kv

Stelpurnar í 7. kvenna voru ánægðar þegar þær fengu Brynjuís í loka æfingar síðasta föstudag.

Sumarið í 7. fl fer mjög vel á stað og má þar nefna að á tveimur af þremur æfingum í síðustu viku voru stelpurnar vel yfir 20 á æfingu.

7. flokkur kvenna er fyrir allar stelpur fæddar 2006 og 2007 og verða æfingar alla virka daga í sumar kl. 13:00-14:15.

Sumaræfingarnar byrja þó ekki fyrr en á föstudaginn og verða æfingar í vikunni kl. 16:00-17:00 þriðjudag og fimmtudag og kl. 13:00-14:15 á föstudag. 

Myndir frá föstudeginum má sjá hér. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is